Knattspyrnufélag Fjallabyggðar með blómasölu í tilefni konudagsins
KF hefur undanfarin ár verið með blómasölu í tilefni konudagsins til karlpeningsins í Fjallabyggð og árið í ár er engin undantekning á því. Við ætlum því að bjóða fram okkar aðstoð við að gleðja konurnar í ykkar lífi, hvort sem það eru eiginkonur, kærustur, mæður, dætur eða bara einhverjar konur sem ykkur þykir vænt um.
Við munum selja blómvönd á 2.000 krónur og það sem meira er við munum keyra vöndinn (vendina) heim til kvennanna ykkar á konudaginn, sem verður á sunnudaginn kemur, 19. febrúar.
Hægt er að panta með því að senda tölvupóst á kf@kfbolti.is og eins er hægt að hringja í Þorra í síma 660-4760 eða Dagnýju í síma 861-7164 og við sjáum um allt ómakið fyrir ykkur.
Bestu kveðjur,
Stjórn KF









