Getraunakeppnin hefst n.k. laugardag 20. nóv.
KS-skrifstofan verður opin frá 11:00 og allir þeir sem ætla að taka þátt í fyrstu getraunakeppni vetrarins eru velkomnir. Þeir sem ekki geta mætt á svæðið geta sent okkur línu á ksgetraunir@gmail.com og tekið þátt í leiknum.
ATHUGIÐ: Seðlar sem berast eftir klukkan 11:00 á tippdegi í gegnum e-mailið okkar verða ekki teknir gildir í keppninni.
Fyrirkomulag keppninar verður með svipuðu sniði og s.l. vetur. Tippað verður í 10 vikur og átta bestu vikurnar látnar gilda.
Þátttökugjald er 2000 krónur á hvern hóp sem tekur þátt (í hverjum hóp mega max vera tveir tipparar)
Vegleg verðlaun verða fyrir þrjú fyrstu sætin á lokadegi/kvöldi keppninar.
Kveðja, yfirtippararnir.









